Hlustendaverðlaunin 2017 fóru fram í Háskólabíói þann 3. febrúar og voru þau í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi.
Verðlaunaafhendingin heppnaðist frábærlega og voru tónlistaratriði kvöldsins ótrúlega vel afgreidd. Um er að ræða stærsta viðburð sem útvarpssvið 365 stendur fyrir á hverju ári og var allt lagt í sölurnar að þessu sinni.
Hér að neðan má sjá niðurstöður kvöldsins og þá sigurvegara sem fóru heim með verðlaun:
Plata ársins
Vagg og velta - Emmsjé Gauti
Nýliði ársins
Aron Can
Söngvari ársins
Friðrik Dór
Flytjandi ársins
Kaleo
Lag ársins
Fröken Reykjavík - Friðrik Dór
Söngkona ársins
Salka Sól
Myndband ársins
Save Yourself - Kaleo
Leikstjórn: Hörður Freyr Brynjarsson
Erlenda lag ársins
Can't Stop The Feeling - Justin Timberlake
Dagskráin í dag
Fylgstu með okkur
Facebook